Barcelona hefur staðfest að Ousmane Dembele verði frá keppni í þrjá og hálfan mánuð eftir að hafa farið í aðgerð vegna meiðsla aftan í læri.
Dembele verður því ekkert með Barcelona fyrr en eftir áramót.
Hinn tvítugi Dembele meiddist í fyrsta byrjunarliðsleik Barcelona um helgina en liðið lagði Getafe þá 2-1.
Dembele fór meiddur af velli á 29. mínútu og strax varð ljóst að meiðslin væru alvarleg.

Hinn tvítugi Dembele kom til Barcelona frá Borussia Dortmund í sumar en kaupverðið gæti endað í 135,5 milljónum punda.
Athugasemdir