Eden Hazard verður í byrjunarliði Chelsea í fyrsta skipti á tímabilinu þegar liðið mætir Nottingham Forest í enska deildabikarnum annað kvöld.
Hazard var frá í þrjá mánuði í sumar eftir að hafa farið í aðgerð á ökkla.
Hazard hefur komið inn á sem varamaður í síðustu leikjum en nú er kominn tími á að hann byrji.
Hazard var frá í þrjá mánuði í sumar eftir að hafa farið í aðgerð á ökkla.
Hazard hefur komið inn á sem varamaður í síðustu leikjum en nú er kominn tími á að hann byrji.
„Núna er rétta augnablikið fyrir Eden til að byrja og reyna að spila allan leikinn," sagði Antonio Conte, stjóri Chelsea.
„Ég vonast til að þetta sé lokaskrefið í endurkomunni eftir meiðslin. Á ferli mínum sem leikmaður var ég mikið meiddur og ég hef því smá reynslu af þessu."
Athugasemdir