Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. september 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Íslendingur fer á æfingamót með Liverpool
Mynd: Facebook
Rafal Stefán Daníelsson, markvörður í 3. flokki Fram, fer um næstu helgi til Tékklands þar sem hann mun spila með U16 ára liði Liverpool á æfingamóti.

Rafal vakti athygli markmannsþjálfara Liverpool í Liverpool skóla Aftureldingar í Mosfellsbæ í júní. Rafal var í kjölfarið boðið að fara til Liverpool á reynslu í sumar.

Undanfarnar sex vikur hefur Rafal æft með Accrington Stanley á Englandi auk þess sem hann var í viku hjá Everton þar sem hann lék einn æfingaleik.

Í síðustu viku hafði Liverpool samband við Rafal og óskaði eftir að fá hann með á æfingamót með U16 ára liði félagsins.

Rafal heldur utan á fimmtudag en hann verður í þrjá daga í Tékklandi með U16 ára liði Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner