Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. september 2017 20:51
Kristófer Jónsson
Ítalía: Inter gerði jafntefli
Icardi skoraði fyrir Inter í kvöld
Icardi skoraði fyrir Inter í kvöld
Mynd: Getty Images
Bologna 1 - 1 Inter
1-0 Simone Verdi ('32 )
1-1 Mauro Icardi ('77 , víti)

Einn leikur átti sér stað í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld en þá mættust Bologna og Inter Milan á Stadio Renato Dell'Ara.

Fyrir leikinn hafði Inter unnið alla fjóra leiki sína á tímabilinu á meðan að Bologna hafði aðeins unnið einn leik. Það kom því á óvart þegar heimamenn komust yfir á 32. mínútu með marki frá Simone Verdi. Þannig hélst staðan allt þangað til að á 77. mínútu en þá fékk Inter vítaspyrnu sem Mauro Icardi skoraði úr.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í þessum leik og 1-1 jafntefli staðreynd. Inter situr eftir leikinn í efsta sæti deildarinnar með 13 stig á meðan Bologna situr í 11. sæti með 5 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner