Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 19. september 2017 19:30
Kristófer Jónsson
John Terry sendi Willian áritaða treyju
John Terry í Chelsea treyjunni ásamt óskýrum Willian
John Terry í Chelsea treyjunni ásamt óskýrum Willian
Mynd: Getty Images
John Terry, fyrrum fyrirliði Chelsea og núverandi leikmaður Aston Villa, virðist hafa mikið dálæti á fyrrverandi liðsfélaga sínum Willian. Brasilíumaðurinn birti fyrr í dag skemmtilega mynd á Instagram síðu sinni sem sýnir áritaða Chelsea treyju frá Terry ásamt skilaboðum.

„Þú ert magnaður leikmaður og góður vinur. Það hefur verið mikill heiður að fylgjast með þér æfa og spila með Chelsea. Ég er heppinn að hafa fengið að spila með þér en ekki þurft að spila á móti þér. Toppleikmaður. JT." sagði í skilaboðunum frá Terry.

Willian er mjög þakklátur fyrir þessa gjöf frá fyrrum samherja sínum og svarar honum með hjartnæmum skilaboðum á Instagram síðu sinni.

„Í vikunni varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá fallega gjöf frá goðsögninni og vini mínum John Terry. Þakka þér kærlega fyrir gjöfina og fallegu skilaboðin sem fylgdu með. Það hefur verið mér mikill heiður að spila með einum besta varnarmanni í heimi. Á þeim fjórum árum sem við unnum saman lærði ég margt af þér og er ég mjög stoltur af því að geta sagt að ég hafi spilað með þér. Ég óska þér velfarnaðar í lífinu kæri vinur."

Willian gekk í raðir Chelsea árið 2013 og saman unnu þeir félagar ensku úrvalsdeildina tvisvar áður en Terry gekk til liðs við Aston Villa í Championship-deildinni í sumar.

In the last days I have had the honor of receiving this beautiful gift from my friend, the legend @johnterry.26. John, thank you very much for this gift and for the beautiful message. It has been a great pleasure to be a team mate of one of the greatest defenders in the world and, above all, an example of a professional football player. In those 4 years that we've been working together I've learned a lot from you and it's a real pride to be able to say that I played with you. All the happiness in the world in your career and in your life, my friend! Nos últimos dias tive a honra de receber esse belo presente do meu amigo, a lenda @johnterry.26 . . John, muito obrigado pelo presente e pela bonita mensagem. . Foi um enorme prazer poder ser companheiro de clube de um dos maiores zagueiros do mundo e acima de tudo um exemplo de profissional, um grande ídolo do futebol. . Nesses 4 anos que estivemos trabalhando juntos eu aprendi muita coisa com você e é um orgulho poder dizer que joguei ao seu lado. . Toda a felicidade do mundo em sua carreira e na sua vida. #johnterry #legend #myfriend #thankyou #gift #CFC #johnterry26

A post shared by Willian Borges Da Silva (@willianborges88) on


Athugasemdir
banner
banner
banner