Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. september 2017 21:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp ósáttur: Þreyttur á svona mörkum
Klopp var fúll eftir leik kvöldsins.
Klopp var fúll eftir leik kvöldsins.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp hefur oft verið hressari en eftir tap gegn Liverpool gegn Leicester í enska deildabikarnum í kvöld.

Eftir ágætis fyrri hálfleik tapaði Liverpool 2-0. Varmaðurinn Shinji Okazaki skoraði fyrst og síðan bætti Islam Slimani við marki, en Klopp var ekki sáttur með varnarleik Liverpool í mörkunum.

„Við spiluðum vel í fyrri hálfleiknum og hefðum átt að klára leikinn þá. Við fengum góð færi," sagði Klopp við Sky Sports.

„En fótboltaleikur er 90 mínútur. Við fengum á okkur mark eftir að hafa tapað seinni bolta eftir hornspyrnu og svo eftir innkast, aftur. Ég er þreyttur á svona mörkum," sagði Klopp.

„Þú þarft að halda einbeitingu alveg til enda, en þeir skoruðu alltof auðveld mörk í þessum leik."



Athugasemdir
banner
banner