Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. september 2017 21:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Afar slök mæting á Wembley í kvöld
Mynd: Getty Images
Tottenham mætti Barnsley í enska deildabikarnum í kvöld, en það er ekki hægt að segja að það hafi verið mikil spenna fyrir leiknum.

Afar fáir sáu sér fært að mæta á Wembley, þjóðarleikvang Englendinga, í kvöld til að horfa á leikinn.

Tottenham spilar heimaleiki sína á Wembley á þessu tímabili þar sem nýr og glæsilegur heimavöllur liðsins er í byggingu.

Það hafa nokkrar myndir birst á samfélagsmiðlum þar sem sést hversu fámennt var á vellinum í kvöld, en það er ekki hægt að segja að þeir stuðningsmenn sem mættu hafi fengið mikið fyrir peninginn. Tottenham vann 1-0 með marki Dele Alli.

Hér að neðan má sjá mynd sem var tekin á leiknum í kvöld.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner