Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 19. september 2017 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndir: Rooney keyrður heim af æfingu
Rooney missti ökuprófið.
Rooney missti ökuprófið.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, framherji Everton, mætti í gær fyrir rétt eftir að hann var gripinn ölvaður undir stýri í byrjun mánaðarins.

Rooney viðurkenndi brot sitt en hann missti bílprófið og verður án þess í tvö ár. Hann þarf að auki að sinna samfélagsþjónustu í 100 klukkutíma og greiða 170 punda sekt.

Sjá einnig:
Rooney missir bílprófið í tvö ár

Eftir að hafa misst bílprófið getur Rooney ekki komið sér sjálfur á æfingar hjá Everton. Hann er kominn með bílstjóra sem skutlar honum á æfingar og heim af þeim.

Það náðist mynd af því þegar Rooney var skutlað heim af æfingu í dag. Hér að neðan er sú mynd.
Athugasemdir
banner
banner