Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 19. september 2017 10:03
Magnús Már Einarsson
Ronaldo spilar fyrsta deildarleikinn á morgun
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, spilar sinn fyrsta leik í spænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili annað kvöld þegar Real Betis kemur í heimsókn.

Ronaldo missti af fyrstu fjórum leikjum tímabilsins í deildinni vegna leikbanns. Ronaldo var dæmdur í bann fyrir að ýta dómara eftir að hann fékk rauða spjaldið í leiknum um Ofurbikarinn gegn Barcelona í ágúst.

Portugalinn skoraði í sigri á Apoel Nicosia í Meistaradeildinni í síðustu viku og á morgun getur Ronaldo spilað sinn fyrsta leik í deildinni.

„Ronaldo er auðvitað bestur. Hann vill pottþétt skora núna mörkin sem hann gat ekki skorað fyrr á tímabilinu," sagði Adan, markvörður Real Betis, smeykur fyrir leikinn á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner