Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 19. september 2017 15:42
Magnús Már Einarsson
Son er með mismunandi handaband fyrir alla leikmenn Tottenham
Son og Dele Alli eiga sitt sérstaka handaband.
Son og Dele Alli eiga sitt sérstaka handaband.
Mynd: GettyImages
Heung-Min Son, leikmaður Tottenham, hefur vakið athygli fyrir það hvernig hann fagnar mörkum með Dele Alli og fleiri leikmönnum Tottenham.

Son tekur þá ýmsar áhugaverðar handahreyfingar. Hann heilsar leikmönnum einnig á æfingasvæðinu með þessum handahreyfingum.

„Hann er með sérstakt handaband við alla," sagði Eric Dier miðjumaður Tottenham í viðtali við Tubes hjá Sky.

„Hann heilsar öllum á morgnanna og það tekur langan tíma. Hann mætir við morgunverðarborðið og er með mismunandi handaband við alla."

Hér að neðan má sjá viðtalið við Dier í heild en þar talar hann um liðsfélaga sína.

Þar kemur meðal annars fram að Harry Kane spilar Justin Bieber í klefanum fyrir leiki og Toby Alderweireld er mest í símanum af leikmönnum Tottenham.


Athugasemdir
banner
banner