Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. október 2014 19:07
Alexander Freyr Tamimi
Danmörk: Ögmundur spilaði fyrsta leik fyrir Randers
Ögmundur Kristinsson.
Ögmundur Kristinsson.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
FC Kaupmannahöfn 1 - 0 Randers
1-0 Alexander Kacaniklic ('34)

Ögmundur Kristinsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Randers í dönsku úrvalsdeildinni þegar liðið tapaði 1-0 gegn FC Kaupmannahöfn í kvöld.

Ögmundur kom inn á sem varamarkvörður í hálfleik, en í fyrri hálfleik hafði Alexander Kacaniklic komið FCK yfir úr vítaspyrnu.

Ögmundur, sem gekk til liðs við Randers frá Fram í sumar, stóð sína vakt vel og fékk ekki á sig mark, en liðsfélögum hans tókst þó ekki að jafna metin.

Rúrik Gíslason var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar og spilaði fyrstu 75 mínúturnar.
Athugasemdir
banner
banner