Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. október 2014 08:00
Elvar Geir Magnússon
Matteo Darmian orðaður við Manchester United
Darmian hefur leikið 8 A-landsleiki fyrir Ítalíu.
Darmian hefur leikið 8 A-landsleiki fyrir Ítalíu.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar segja að Louis van Gaal vilji fá bakvörðinn Matteo Darmian til Manchester United frá Torino.

Þessi 24 ára jafnfætti ítalski landsliðsmaður er metinn á 15 milljónir punda og mögulegt er að hann færi sig um set í janúarglugganum.

Njósnarar United hafa fylgst grannt með Darmian í dágóðan tíma.

Dani Alves er sagður vilja koma til United en Darmian er yngri kostur auk þess að vera með lægri launakröfur. Brasilíumaðurinn Rafael er mjög óstöðugur og hefur það ýtt Van Gaal í að yfirfara bakvarðamál liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner