Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. október 2014 21:00
Alexander Freyr Tamimi
Platini opinn fyrir endurkosningu um HM 2022
Michel Platini.
Michel Platini.
Mynd: Getty Images
Michel Platini, forseti UEFA, segist enn styðja að HM 2022 sé haldið í Katar. Hins vegar megi kjósa upp á nýtt ef upp kemst um spillingu.

Margir vilja að HM 2022 verði ekki haldið í Katar, bæði vegna gríðarlegs hita þar um sumar og einnig vegna meintrar spillingar í atkvæðagreiðslu.

,,Breska pressan hefur ekki haldið því fram að ég sé spilltur," sagði Platini við beIN Sports.

,,Ef atkvæðagreiðslan var spillt verður að kjósa upp á nýtt."

,,Ég varði það að mótið yrði haldið á nýjum slóðum. Arabaheimurinn hafði tapað sjö atkvæðagreiðslum í röð. Þannig að það er gott að Rússland og Katar fái að halda HM, þó ég muni styðja að HM 2022 verði spilað að vetri til."

,,Ég sé ekkert eftir mínu atkvæði en við sjáum hvað setur."


Athugasemdir
banner
banner
banner