sun 19. október 2014 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Redknapp hraunar yfir Taarabt: „20 kílóum of þungur“
Taarabt er allt of þungur að sögn Redknapp.
Taarabt er allt of þungur að sögn Redknapp.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Queens Park Rangers, lét Adel Taarabt heyra það opinberlega eftir 3-2 tap liðsins gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Enn og aftur var marokkóski landsliðsmaðurinn utan hóps hjá QPR og þegar blaðamenn spurðu Redknapp af hverju, þá ákvað hann að skafa ekkert af hlutunum.

,,Taarabt er ekki meiddur. Hann er ekki í formi," sagði Redknapp.

,,Hann er því miður ekki í formi til að spila fótbolta. Hann spilaði varaliðsleik á dögunum og ég hefði getað hlaupið meira en hann gerði. Ég get ekki valið hann."

,,Ég get ekki haldið áfram að vernda menn sem nenna ekki að hlaupa og æfa, sem eru um það bil 20 kílóum of þungir. Hvað á ég að segja? Haltu áfram að fá 60 eða 70 þúsund pund á viku en ekki æfa? Hvað er að gerast í þessari íþrótt?"

,,Ég vel leikmenn sem reyna, sem eiga skilið að vera hjá góðu félagi eins og QPR, sem koma á hverjum degi og vilja leggja hart að sér, æfa og sýna gott hugarfar. Þegar hann byrjar á því, ef hann þá getur það, þá fær hann kannski að spila."


Athugasemdir
banner
banner
banner