Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 19. október 2014 11:50
Elvar Geir Magnússon
Rússland: Sölvi og félagar með mikilvægan sigur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen spilaði allan leikinn í vörn Ural Ural S.R sem vann 2-0 sigur gegn Spartak Moskvu á heimavelli sínum í dag.

Þetta var annar sigur Ural á tímabilinu en að loknum ellefu leikjum er liðið á fallsvæðinu, situr nú í þrettánda sæti af sextán.

Ural skoraði eitt mark í hvorum hálfleik, fyrst var það Aleksandr Erohin en svo Pablo Fontanello.

Krasnodar er í fimmta sætinu en Ragnar Sigurðsson skoraði fyrra mark liðsins í 2-2 jafntefli gegn Zenit í gær.

Sölvi hefur þurft að verma varamannabekkinn í fyrstu þremur landsleikjum Íslands í undankeppni EM þar sem hann er á eftir Ragnari og Kára Árnasyni í röðinni.
Athugasemdir
banner
banner