Það hefur verið orðrómur í gangi um helgina þess efnis að Dani Alves hafi þegar náð samkomulagi við Manchester United um að spila fyrir félagið næsta tímabil.
Samningur Alves rennur út næsta sumar og talað hefur verið um að bakvörðurinn sé á leið í enska boltann.
Samningur Alves rennur út næsta sumar og talað hefur verið um að bakvörðurinn sé á leið í enska boltann.
Hinn vel tengdi spænski blaðamaður, Guillem Balague hjá AS, segir sögusagnirnar rangar og að Alves sé í viðræðum við Barcelona um nýjan samning.
Leikmannamál Manchester United eru mikið í fréttum þessa dagana. Í slúðurpakka dagsins er Adnan Januzaj sagður á óskalista Real Madrid og þá greindum við frá því í morgun að Matteo Darmian sé orðaður við Old Trafford.
Alves has NOT signed for United. He's negotiating a new contract with FCB. Main sticking point: club wants ... http://t.co/QhFBPpsfII
— Guillem Balague (@GuillemBalague) October 19, 2014
Athugasemdir