Kristófer Páll Viðarsson, leikmaður Víkings R. spilar með KA í Pepsi-deildinni eftir að félögin komust að samkomulagi um að lána hann norður. Lánssamningurinn gildir í eitt ár.
Framherjinn skrifaði í leiðinni undir nýjan samning við Víkinga og er hann nú samningsbundinn til 2018.
Kristófer vildi vera fyrir norðan í sumar og er þetta því hentug lausn fyrir alla aðila en hann átti mjög gott tímabil með Leikni F. í Inkasso-deildinni á síðustu leiktíð
Hann skoraði tíu mörk í 22 leikjum og þar á meðal fjögur mörk í lokaleiknum þar sem Leiknir tryggði sér áframhaldandi veru í Inkasso-deildinni með ótrúlegum 7-2 sigri á HK.
Kristófer hefur alla tíð leiktið með Leikni F, þrátt fyrir að vera samningbundinn Víkingi síðustu tvö ár, en hann hefur verið lánaður til Leiknis undanfarin ár þar sem hann hefur spilað undir stjórn Viðars Jónssonar, pabba síns.
„Þetta eru gleðitíðindi fyrir KA-menn að eins ungur og efnilegur leikmaður eins og Kristófer vilji koma til félagsins og spreyta sig í deild þeirra bestu á næsta ári. Þrátt fyrir ungan aldur hefur pilturinn leikið 69 leiki í deildarkeppni á Íslandi og skoraði í þeim 30 mörk," segir á heimasíðu KA.


