mið 19. október 2016 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Walcott: Ekki auðvelt þrátt fyrir 6-0 sigur
Theo Walcott í leiknum í kvöld
Theo Walcott í leiknum í kvöld
Mynd: Getty Images
Theo Walcott, leikmaður Arsenal, segir að leikurinn gegn Ludogorets í kvöld hafi verið erfiður þrátt fyrir að enska liðið vann hann 6-0.

Sigurinn var aldrei í hættu en Alexis Sanchez, Walcott, Ales Oxlade Chamberlain og Mesut Özil sáu um mörkin en sá síðastnefndi skoraði þrennu.

Ludogorets fékk þó sín tækifæri og segir Walcott þetta ekki hafa verið eins auðvelt og flestir halda.

„Markið mitt var gott en fyrsta markmiðið var að halda hreinu. Við vitum hvað við erum góðir framarlega á vellinum en það skiptir máli að vera sterkir varnarlega og það hefur tekist á þessu tímabili. Frammistöðurnar verða bara betri;" sagði Walcott.

„Þeir byrjuðu leikinn mjög vel, þeir eru með tekníska menn sem eru mjög góðir leikmenn og lokatölurnar gefa það til kynna að þetta hafi verið auðveldur leikur en hann var langt frá því að vera auðveldur," sagði hann.
Athugasemdir
banner
banner