Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 19. október 2017 12:02
Elvar Geir Magnússon
Aron Jóhannsson orðaður við Leeds
Fer Aron til Englands í janúar?
Fer Aron til Englands í janúar?
Mynd: Getty Images
Þýskir fjölmiðlar segja að enska félagið Leeds hafi haft áhuga á Aroni Jóhannssyni í sumar, áður en félagið keypti Pierre-Michel Lasogga frá Hamburg.

Á vefsíðunni Sport Witness er talað um að Leeds gæti reynt að fá Aron í janúarglugganum og að Werder Bremen sé tilbúið að selja.

Aron, 26 ára, er úti í kuldanum hjá Werder Bremen og fær ekkert að spila.

Leeds var í viðskiptum við þýska félagið í síðasta glugga þegar það fékk Felix Wiedwald.

Allt bendir til þess að Aron, sem er fyrrum leikmaður Fjölnis, færi sig um set í janúar.

Leeds er sem stendur í sjötta sæti Championship-deildarinnar á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner