Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   fim 19. október 2017 09:30
Mist Rúnarsdóttir
Wiesbaden
Ingibjörg um Noregsdvölina: Fínt að prófa eitthvað nýtt
Ingibjörg og Sif á æfingu í gær
Ingibjörg og Sif á æfingu í gær
Mynd: Anna Þonn
„Það er skemmtilegt að hitta allar og komast aftur í gírinn. Við erum búnar að hafa það gott. Þetta er fínt hótel, við erum búnar að æfa á góðum æfingavöllum og það hefur gengið vel,“ sagði landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir í samtali við Fótbolta.net síðdegis í gær. Ingibjörg er í landsliðshópnum sem mætir Þýskalandi í undankeppni HM á morgun og Tékkum eftir helgi. Hún segir íslenska liðið leggja mikið kapp á að vera vel undirbúið leikfræðilega þegar kemur að rimmunni við Þjóðverja.

„Þetta snýst mikið um að stilla okkar taktík miðað við þennan leik. Þær eru náttúrulega með ótrúlega gott lið og við þurfum að vera í toppstandi ef við ætlum að fá það sem við viljum út úr leiknum.“

Eftir að keppni lauk heima á Íslandi fór Ingibjörg til Noregs þar sem hún æfði með Valerenga og gat þannig haldið sér í góðu formi. Hún segir það hafa verið lærdómsríkt og getur vel hugsað sér að spila í slíku umhverfi í framtíðinni.

„Við Sísí fórum til Gunnhildar og æfðum með henni og liðinu hennar. Það var fínt að prófa eitthvað nýtt og læra aðeins inn á þetta.“

Voru aðstæður öðruvísi en á Íslandi?

„Þetta eru náttúrulega atvinnumenn sem æfa þarna með henni og það var gaman að sjá hvernig hún æfir. Það er engin tilviljun að hún er í þessu formi. Hún æfir eins og brjálæðingur og maður lærir mikið af henni.“

Aðspurð um það hvort þessir stóru landsleikir sem framundan eru séu ekki fínir sýningargluggar fyrir unga og efnilega leikmenn svaraði Ingibjörg:

„Jú, ég myndi halda það en það er fyrst og fremst mikilvægt að liðið standi sig vel og nái stigum út úr þessum leikjum.“

Nánar er rætt við Ingibjörgu í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner