Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. október 2017 12:57
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Ógnvekjandi göng sem bíða leikmanna Arsenal
Mynd: Getty Images
Það verður brjáluð stemning í Belgrad í dag þegar Rauða stjarnan tekur á móti Arsenal í Evrópudeildinni. Stuðningsmenn Rauðu stjörnunnar eru þekktir um allan heim og það verða læti í þeim 50 þúsund áhorfendum sem verða á vellinum í kvöld.

Hér að neðan má sjá myndband frá hinum ógnvekjandi göngum sem leikmenn Arsenal þurfa að fara í gegnum áður en þeir fara út á völlinn. Það tekur rúmlega mínútu að fara frá klefunum og út á völlinn.

Það verður ekki vinalegt andrúmsloft fyrir Arsenal í Serbíu í kvöld en gríðarleg öryggisgæsla verður í kringum leikinn eins og venja er þegar Rauða stjarnan, eða Crvena Zvezda eins og liðið heitir í Serbíu, leikur stóra leiki.

Leikur Rauðu stjörnunnar og Arsenal hefst klukkan 17 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner