banner
   fim 19. nóvember 2015 06:30
Arnar Geir Halldórsson
Dunga: Þeir settu þrjá menn á Neymar
Neymar
Neymar
Mynd: Getty Images
Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, kom Neymar til varnar eftir 3-0 sigur liðsins á Perú í fyrradag.

Neymar þótti ekki áberandi í sóknarleik Brassana á meðan Douglas Costa, leikmaður Bayern Munchen, stal senunni. Hann skoraði eitt mark og lagði upp annað.

Dunga segir varnarmenn Perú hafa lagt allt í sölurnar við að verjast Neymar, sem hafi opnað fyrir aðra leikmenn Brasilíu.

„Neymar var alltaf dekkaður af tveim til þrem varnarmönnum, það opnaði svæði fyrir hina."

„Neymar var einn af þeim sem opnaði fyrir Renato Augusto þegar hann skoraði annað markið okkar. Neymar lagði mikið á sig og skilaði góðu verki,"
sagði Dunga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner