Everton hefur gert samkommulag við Bury um að fá hinn 17 ára Matty Foulds frá félaginu.
Unglingurinn kemur til Everton í janúar en kaupverðið var ekki gefið upp.
Foulds er miðvörður en hann kemur úr akademíu Bury og skrifaði hann undir sinn fyrsta atvinnumanna samning í febrúar.
Hann hefur leikið tvo leiki fyrir Bury en hans hann kom inn á sem varamaður í 4-1 tapi gegn Leicester í deildarbikarnum í ágúst.
Foulds spilaði síðan allan leikinn er liðið vann Accrington í neðrideildarbikarnum september.
Ásamt því að fá Foulds til liðsins hefur Roberto Martinez, þjálfari Everton, sagt að John Stones muni ekki yfirgefa félagið.
Athugasemdir