Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 19. nóvember 2015 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Eyjafréttir 
Halldór Páll gerir þriggja ára samning við ÍBV (Staðfest)
Dhaira fær samkeppni.
Dhaira fær samkeppni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Páll Geirsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við ÍBV sem rétt hélt sér uppi í Pepsi-deild karla á síðasta tímabili.

Halldór Páll er 21 árs gamall markvörður og er uppalinn Eyjamaður þar sem hann spilaði upp alla yngri flokkana.

Síðasta sumar spilaði Halldór með KFS og stóð sig með prýði á milli stanganna en hann á að veita Abel Dhaira samkeppni á næsta ári.

„Ég er mjög spenntur fyrir tímabilinu og þetta verður bara skemmtilegt," sagði Halldór í samtali við Eyjafréttir.
Athugasemdir
banner
banner
banner