Öryggisgæsla við Santiago Bernabeu leikvanginn í Madríd verður hert til mikilla muna á laugardag þegar Real Madrid og Barcelona eigast við.
Er þetta gert í kjölfar hryðjuverkanna í París síðastliðið föstudagskvöld þegar leikur Frakklands og Þýskalands fór fram.
Öryggisgæsla er jafnan mikil þegar þessir erkifjendur eigast við en tvöfalt fleiri löggæslumenn starfa við leikinn á laugardag en síðast þegar þessi lið mættust.
Eitt þúsund lögregluþjónar verða við leikvanginn auk 1400 sérsveitarmanna en Santiago Bernabeu leikvangurinn er risastórt mannvirki sem tekur ríflega 85 þúsund áhorfendur í sæti.
Tveimur vináttulandsleikjum var aflýst í kjölfar árasanna í París, fyrst leik Belgíu og Spánar sem fyrirhugaður var í Brussel og svo leik Þýskalands og Hollands sem átti að fara fram í Hannover.
Athugasemdir