Heimild: Sky
Branislav Ivanovic telur að það sé rangt að kenna Jose Mourinho alfarið um slæmt gengi Chelsea á tímabilinu.
Serbneski varnarmaðurinn segir stuðningsmenn og leikmenn Chelsea standa með Mourinho og er bjartsýnn fyrir framtíðinni.
Serbneski varnarmaðurinn segir stuðningsmenn og leikmenn Chelsea standa með Mourinho og er bjartsýnn fyrir framtíðinni.
„Við sýndum ekki rétt viðbrögð eftir að hafa unnið deildina á síðasta tímabili. Eina leiðin út úr þessari stöðu er með því að vinna, vinna og vinna svo aftur," sagði Ivanovic við Evening Standard.
„Ég held að enginn leikmaður vilji tapa leik. Allir hjá Chelsea vilja vinna, við erum opnir og heiðarlegir við hvorn annan og tölum mikið saman. Við gagnrýnum hvorn annan á jákvæðan hátt, það er ekkert neikvætt í gangi.
„Leikur okkar hefur skánað til muna á síðustu vikum og næstu leikir geta orðið þeir mikilvægustu á tímabilinu, sérstaklega sálfræðilega séð. Við verðum að sýna að við erum komnir aftur og til í slaginn.
,Jose leggur sig allan fram og gerir það sem hann getur til að hjálpa okkur úr erfiðum aðstæðum. Stuðningsmennirnir hafa stutt við bakið á okkur frá fyrstu mínútu og það er frábært fyrir stjórann. Hann hefur líka fullan stuðning frá leikmannahópnum."
Chelsea er í sextánda sæti úrvalsdeildarinnar, með ellefu stig eftir tólf umferðir.
Athugasemdir