Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. nóvember 2015 08:30
Arnar Geir Halldórsson
Lavezzi langar til Barcelona
Ezequiel Lavezzi
Ezequiel Lavezzi
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Ezequiel Lavezzi hefur áhuga á að færa sig yfir til Barcelona frá París ef marka má nýjustu ummæli kappans.

Samningur Lavezzi við franska stórveldið rennur út næsta sumar og hafa sögusagnir verið á kreiki um að hann muni jafnvel færa sig um set í janúar.

„Ég ætla ekki að neita því að það væri draumi líkast að spila með liði eins og Barcelona."

„Ég mun fara yfir stöðuna í rólegheitum og reyna að taka sem besta ákvörðun,"
segir Lavezzi.

Þessi þrítugi kantmaður var öflugur með Argentínu í vikunni en hann skoraði eina mark liðsins í jafntefli gegn Brasilíu og lagði svo upp sigurmark Argentínu gegn Kólumbíu í 1-0 sigri.
Athugasemdir
banner
banner
banner