Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 19. nóvember 2015 21:25
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Sara og félagar slátruðu Verona
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rosengård 5 - 1 Verona (8-2 samanlagt)
0-1 M. Gabbiadini ('20)
1-1 J. Belanger ('38)
2-1 Marta ('50)
3-1 S: Fuselli ('65, sjálfsmark)
4-1 Marta ('67)
5-1 Marta ('87)

Sara Björk Gunnarsdóttir lék fyrstu 80 mínúturnar gegn Verona í Meistaradeild kvenna fyrr í kvöld.

Rosengård hafði unnið fyrri viðureignina með þremur mörkum gegn einu á Ítalíu og var aldrei í hættu í á heimavelli, þrátt fyrir opnunarmarkið sem gestirnir skoruðu snemma leiks.

Brasilíski sóknarmaðurinn Marta gerði þrennu í leiknum og tryggði liðinu þátttökurétt í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner