Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 19. nóvember 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Eitt ótrúlegasta sjálfsmark allra tíma
Það getur komið fyrir bestu menn að setja boltann í eigið net.
Það getur komið fyrir bestu menn að setja boltann í eigið net.
Mynd: Getty Images
Romford og Thurrock mættust í gríðarlegum vindi í Isthmian utandeildinni á Englandi.

Vindurinn var ansi truflandi fyrir leikmenn og hafði gífurleg áhrif á leikinn eins og má sjá á myndbandinu sem fylgir hér fyrir neðan.

Þar sést þegar varnarmaður Thurrock reynir að hreinsa boltann úr eigin vallarhelming og sparkar honum upp í loft.

Vindurinn tekur við stjórn á boltanum og feykir honum í átt að marki Thurrock, sem endar með því að markvörðurinn ræður ekki við skoppandi boltann sem er á fleygiferð vegna vindsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner