Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. nóvember 2017 13:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikir: Bræður sáu um ÍBV - Jafnt hjá ÍA og KR
Ásgeir skoraði fyrir HK.
Ásgeir skoraði fyrir HK.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Skagamenn gerðu jafntefli gegn KR.
Skagamenn gerðu jafntefli gegn KR.
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Íslensk félög eru byrjuð að undirbúa sig fyrir næsta tímabil og spila æfingaleiki.

HK vann ÍBV í Kórnum eftir að hafa lent 1-0 undir. Bræðurnir Arian Ari Morina og Andi Andri Morina skoruðu þrjú af mörkum HK í leiknum sem var í gær.

ÍA og KR mættust einnig í gær og endaði sá leikur með 2-2 jafntefli. Gylfi Brynjar Stefánsson skoraði bæði mörk ÍA, en Kennie Chopart kom KR-ingum í 1-0.

Þróttur V. sem mun spila í 2. deild í sumar, lagði síðan Gróttu á Seltjarnarnesi í gær.

HK 4 - 1 ÍBV
0-1 Sindri Snær Magnússon
1-1 Ásgeir Marteinsson
2-1 Arian Ari Morina
3-1 Arian Ari Morina
4-1 Andi Andri Morina

ÍA 2 - 2 KR
0-1 Kennie Chopart
1-1 Gylfi Brynjar Stefánsson
2-1 Gylfi Brynjar Stefánsson
2-2 Sölvi Björnsson

Grótta 0 - 2 Þróttur V.
0-1 Andri Björn Sigurðsson ('65)
0-2 Ragnar Þór Gunnarsson ('75)

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner