Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. nóvember 2017 19:13
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Rúnar Alex gat ekki stöðvað Bröndby - Pukki með þrjú
Pukki skoraði þrennu á tæpri klukkustund.
Pukki skoraði þrennu á tæpri klukkustund.
Mynd: Getty Images
Bröndby 4 - 2 Nordsjælland
1-0 T. Pukki ('12)
2-0 T. Pukki ('48)
3-0 T. Pukki ('61)
4-0 H. Mukhtar ('73)
4-1 E. Marcondes ('76, víti)
4-2 M. Rasmussen ('81)

Rúnar Alex Rúnarsson var á milli stanga Nordsjælland sem tapaði 4-2 fyrir Bröndby í dönsku toppbaráttunni.

Þrátt fyrir mikla markaskorun var leikurinn í dag fremur tíðindalítill þar sem bæði lið voru dugleg að nýta færin.

Teemu Pukki gerði eina mark fyrri hálfleiksins og fullkomnaði þrennu á rétt rúmum klukkutíma.

Hjörtur Hermannsson fékk að spila síðustu ellefu mínúturnar fyrir Bröndby, sem er með fjögurra stiga forystu á toppnum. Rúnar og félagar eru í þriðja sæti, sex stigum eftir Bröndby.
Athugasemdir
banner
banner