Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. nóvember 2017 21:47
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Icardi afgreiddi Atalanta - Hoppa yfir Juventus
Mynd: Getty Images
Inter 2 - 0 Atalanta
1-0 Mauro Icardi ('51)
2-0 Mauro Icardi ('60)

Mauro Icardi sökkti Atalanta er Inter endurheimti annað sæti ítölsku deildarinnar af Juventus, sem tapaði óvænt fyrr í dag.

Leikurinn var nokkuð jafn og fengu bæði lið fín færi, en Icardi gerði herslumuninn eins og svo oft áður.

Atalanta er um miðja deild eftir tapið en Inter er í öðru sæti, tveimur stigum fyrir ofan Juve og tveimur stigum fyrir neðan topplið Napoli.
Athugasemdir
banner
banner
banner