Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. nóvember 2017 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kane: Markmiðið að leika allan ferilinn með Tottenham
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Harry Kane hefur ekki áhuga á því að yfirgefa Tottenham í bráð. Hann gæti jafnvel hugsað sér að spila allan sinn leikmannaferil hjá Lundúnafélaginu

Kane hefur verið magnaður fyrir Tottenham og hefur verið orðaður við Real Madrid að undanförnu.

Hann er þó ekkert að flýta sér að yfirgefa Tottenham.

„Markmiðið mitt er að spila allan minn feril með Tottenham," sagði Kane í samtali við Bild am Sonntag í Þýskalandi.

„Við erum með frábært lið, frábæran þjálfara, stórkostlegt æfingasvæði og svo erum við að fá nýjan heimavöll. Í augnablikinu hentar mér allt mjög vel hérna og ég er mjög ánægður."

Smelltu hér til að lesa viðtalið í heild sinni
Athugasemdir
banner
banner