Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 19. nóvember 2017 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Þegar Zlatan sneri aftur
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic sneri aftur á fótboltavöllinn í gær þegar Manchester United lagði Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.

Zlatan er orðinn 36 ára gamall. Hann lék 46 leiki og skoraði 28 mörk fyrir United á síðasta leiktímabili áður en hann meiddist illa á hné og missti af lokakafla tímabilsins.

Búist var við því að ferlinum hjá honum væri jafnvel lokið, en hann var ekki búinn að segja sitt síðasta.

Hann ákvað að skrifa undir nýjan samning við Man Utd og gær sneri hann aftur inn á fótboltavöllinn.

Eftir leik hafði hann þetta að segja: „Hafði ég áhyggjur að ég myndi ekki snúa aftur? Nei vegna þess að endurhæfingin hjá ljónum er ekki eins og hjá mönnum."

Hér að neðan er myndband af því þegar Zlatan kom inn á í gær í leiknum sem endaði 4-1 fyrir United.



Athugasemdir
banner
banner