Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. nóvember 2017 16:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sviss: Guðlaugur Victor spilaði í tapi gegn toppliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn þegar Zürich tapaði gegn toppliðinu í svissnesku úrvalsdeildinni í dag.

Toppliðið sem um ræðir er Young Boys.

Zürich komst yfir í leiknum, en tveimur mínútum síðar jafnaði Miralem Sulejmani fyrir Young Boys úr vítaspyrnu. Roger Assalé gerði síðan sigurmarkið þegar lítið var eftir af leiknum.

Zürich hefur nú mistekist að vinna í fjórum deildarleikjum í röð og er liðið nú 11 stigum á eftir Young Boys.

Grasshopper komst upp fyrir Zürich í þriðja sæti deildarinnar með 2-0 sigri á Thun í dag. Rúnar Már Sigurjónsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Grasshopper.

Grasshopper 2 - 0 Thun
1-0 Albion Avdijaj ('74)
2-0 Ablion Avdijaj ('85)

Young Boys 2 - 1 Zürich
0-1 Sjálfsmark ('34)
1-1 Miralem Sulejmani ('36, víti)
2-1 Roger Assalé ('84)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner