Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. nóvember 2017 19:07
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Max Kruse lagði upp og setti þrennu
Mynd: Getty Images
Schalke og Werder Bremen unnu sína heimaleiki í dag nokkuð örugglega.

Franco Di Santo skoraði úr vítaspyrnu er Schalke lagði Hamburger SV. Guido Burgstaller innsiglaði sigurinn þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir.

Heimamenn komust upp í 2. sæti með sigrinum á meðan HSV er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.

Aron Jóhannsson var ekki í hóp vegna meiðsla er Werder Bremen vann sinn fyrsta leik á tímabilinu.

Max Kruse lagði fyrsta mark leiksins upp og skoraði hin þrjú í síðari hálfleik.

Sigurinn var afar óvæntur og kom gegn góðu liði Hannover sem hefur byrjað tímabilið vel.

Schalke 2 - 0 Hamburger SV
1-0 F. Di Santo ('17, víti)
2-0 G. Burgstaller ('77)

Werder Bremen 4 - 0 Hannover
1-0 F. Bartels ('39)
2-0 M. Kruse ('55)
3-0 M. Kruse ('59)
4-0 M. Kruse ('78)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner