Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. nóvember 2017 16:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Sara Björk heldur áfram að skora
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
SGS Essen 0 - 4 Wolfsburg
0-1 Ewa Pajor ('13)
0-2 Tessa Wullaert ('28)
0-3 Sara Björk Gunnarsdóttir ('58)
0-4 Alexandra Popp ('85)

Sara Björk Gunnarsdóttir var enn eina ferðina á skotskónum á þessu tímabili í dag.

Wolfsburg sótti SGS Essen heim og komst aftur á topp þýsku úrvalsdeildarinnar.

Staðan var 2-0 í hálfleik fyrir Wolfsburg og í upphafi seinni hálfleiks bætti Sara Björk við þriðja markinu. Alexandra Popp gerði síðan fjórða markið áður en yfir lauk og lokatölur 4-0.

Þetta var reyndar fyrsta mark Söru í deildinni, en hún hefur skorað fjögur mörk í Meistaradeildinni og því hennar fimmta mark á tímabilinu þegar á heildina er litið.
Athugasemdir
banner
banner