Á komandi ári mun Stöð 2 sýna nýja þáttaröð af Atvinnumennirnir okkar en Auðunn Blöndal opinberaði þetta á Twitter.
Í þáttunum eru atvinnumenn okkar Íslendinga heimsóttir út en fyrri þáttaröðin kom út 2009.
Í þáttunum eru atvinnumenn okkar Íslendinga heimsóttir út en fyrri þáttaröðin kom út 2009.
Þá voru Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Hermann Hreiðarsson meðal þeirra sem voru heimsóttir og sýnt bak við tjöldin.
Hannes Þór Halldórsson var leikstjóri þáttanna en Auðunn kynnir.
Auðunn spurði fylgjendur sína á Twitter hvort það væri frekar til í Atvinnumennina okkar eða Asíska drauminn og hlutu Atvinnumennirnir yfirgnæfandi kosningu.
Hlusta alltaf à mitt fólk hérna à Twitter, Atvinnumennirnir okkar 2 verða à dagskrà hjà Stöð2 àrið 2015!!
— Auðunn Blöndal (@Auddib) December 18, 2014
Athugasemdir