,,Franska deildin inniheldur bestu knattspyrnumenn heimsins," segir Marcelo Bielsa, þjálfari Marseille í Frakklandi.
Argentínski þjálfarinn tók við Marseille í sumar og gerði tveggja ára samning við félagið en hafði áður þjálfað Argentínu, Síle og Athletic Bilbao.
Frá því Bielsa tók við Marseille hefur líklega aldrei gengið betur en liðið er í efsta sæti deildarinnar sem stendur þegar einn leikur er eftir af árinu.
Hann er á þeirri skoðun að franska deildin framleiði bestu knattspyrnumenn heimsins og að félög leiti mikið til Frakklands.
,,Franska deildin er með bestu knattspyrnumenn heims. Bestu lið heimsins eru alltaf að kaupa leikmenn frá Frakklandi," sagði Bielsa.
Athugasemdir