Enska félagið Chesterfield vill fá Gary Martin framherja KR aftur á reynslu í janúar.
Gary hefur æft með Chesterfield undanfarna daga en liðið er í ensku C-deildinni.
,,Ég æfði bara tvívegis og æfingaleiknum sem ég átti að spila var frestað. Þeir hrifust samt af mér á æfingum og vilja fá mig aftur í janúar," sagði Gary við Fótbolta.net í dag.

,,Ég mun spila leik með þeim í janúar og við sjáum hvað gerist eftir það. Í millitíðinni mun ég koma aftur til Íslands þann 28. desember og bíða eftir að þetta verði skipulagt."
Gary hefur leikið í tvö og hálft ár með KR en hann varð markahæsti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni í sumar með þrettán mörk.
Athugasemdir