Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 19. desember 2014 08:00
Daníel Freyr Jónsson
Falcao vill vera áfram hjá United
Falcao.
Falcao.
Mynd: Getty Images
Framherjinn Radamel Falcao, leikmaður Manchester United, segist ólmur vilja vera áfram hjá félaginu eftir að lánssamningi hans líkur næsta sumar.

United fékk Falcao að láni frá Monaco undir lok félagaskiptagluggans í sumar, hann hefur ekki náð að sýna sitt besta og hafa meiðsli sett strik í reikninginn.

Falcao hefur einungis skorað eitt mark í þeim 6 leikjum sem hann hefur komið við sögu í og í flestum leikjum var hann varamaður.

,,Frá mínum bæjardyrum séð, þá vil ég vera áfram en ég þarf auðvitað að skoða málið vel og vandlega," sagði Kólumbíumaðurinn.

,,Ég mun sjá til hvort ég spili meira og hvaða ákvörðun stjórnin tekur. En ég vil virkilega vera áfram hérna."

,,Mér finnst ég vera tilbúinn ef liðið þarfnast mínum. Í hvert sinn sem ég kem inn á legg ég eins mikið á mig og ég mögulega til til að gera það besta fyrir
Athugasemdir
banner
banner
banner