Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. desember 2014 19:40
Brynjar Ingi Erluson
Joe Hart búinn að framlengja við Man City (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Joe Hart, markvörður Manchester City á Englandi, hefur samið við félagið út tímabilið 2018/2019.

Hart, sem er uppalinn hjá Manchester City, skrifaði í dag undir samning við félagið en hann mun þéna 120 þúsund pund á viku.

Hugur hans var alltaf hjá Manchester City en hann vonast til þess að vinna fleiri titla með félaginu á næstu árum.

,,Ég er mjög ánægður. Ég er búinn að vera hérna lengi og vil halda áfram á sömu braut," sagði Hart.

Athugasemdir
banner
banner