Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi, segir að Eden Hazard muni skrifa undir nýjan samning við félagið á allra næstunni.
Hazard, sem er 23 ára gamall, er lykilmaður í liði Chelsea og er talinn einn af bestu knattspyrnumönnum heims um þessar mundir en enska liðið hefur verið nánast óstöðvandi á þessari leiktíð.
Belgíski landsliðsmaðurinn hefur verið í samningaviðræðum við Chelsea frá því í júní en hann er nálægt því að skrifa undir samning við félagið sem mun gera hann að launahæsta leikmanninum í sögu liðsins.
,,Hann mun skrifa undir nýjan samning. Ég hef aldrei haft áhyggjur af stöðunni og hef ekki haft síðan ég hitti pabba hans, þá var mér ljóst hverjar áætlanir drengsins eru og að hann væri ánægður hjá Chelsea," sagði Mourinho.
Athugasemdir