Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. desember 2014 07:30
Magnús Már Einarsson
Sólon Breki og Alfons semja við Breiðablik
Alfons (á efri mynd) og Sólon Breki (á neðri)
Alfons (á efri mynd) og Sólon Breki (á neðri)
Mynd: Breiðablik
Sólon Breki Leifsson og Alfons Sampsted hafa báðir skrifað undir þriggja ára samning við Breiðablik.

Sólon Breki 16 ára gamall framherji en hann er á yngsta árinu í 2. flokk karla.

Sólon sem hefur m.a. verið undir smásjá erlendra liða hefur leikið 9 leiki fyrir U-17 ára landslið Íslands og skorað í þeim eitt mark.

Alfons er 16 ára bakvörður sem hefur spilað með Blikum upp yngri flokkana.

Hann er hraður og duglegur leikmaður sem hefur nýverið spilað sína fyrstu leiki með meistaraflokki og staðið sig vel. Alfons hefur einnig spilað 10 leiki fyrir U17 ára landslið Íslands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner