Samkvæmt vefsíðu Tottenham Hotspur gæti leik liðsins við Manchester United verið frestað.
Liðin eiga að mætast í ensku Úrvalsdeildinni klukkan 16:00 en snjókoma er í Lundúnum og gæti því verið að leiknum verði frestað vegna veðurs.
Liðin eiga að mætast í ensku Úrvalsdeildinni klukkan 16:00 en snjókoma er í Lundúnum og gæti því verið að leiknum verði frestað vegna veðurs.
,,Leikurinn gegn Manchester United mun fara fram ef ástandið versnar ekki," stendur í yfirlýsingu á opinberri vefsíðu Tottenham.
,,Þetta snýst aðallega um hvort það snjói mikið á næstu tímum. Vallarstarfsmenn eru að gera sitt allra besta til að gera völlinn tilbúinn."
Athugasemdir