Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 20. janúar 2015 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Berlusconi: Þeir þéna fimm sinnum minna en við
Betri tímar.
Betri tímar.
Mynd: Getty Images
Silvio Berlusconi er ekki ánægður með gengi AC Milan á tímabilinu enda er liðið í 8. sæti deildarinnar, 7 stigum frá meistaradeildarsæti.

Milan tapaði fyrir Atalanta í síðustu umferð og var Berlusconi, sem er eigandi Milan, ekki ánægður með það og kallaði tapið óásættanlegt.

,,Ég er ekki reiður, ég er niðurdreginn," sagði Berlusconi samkvæmt Ansa.

,,Ég skil að þetta eru ekki tímar sem við getum farið til Spánar og unnið Barcelona, en að tapa gegn leikmönnum sem þéna fimm sinnum minna en við er einfaldlega óásættanlegt."
Athugasemdir
banner
banner
banner