Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 20. janúar 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Blikar krækja í Svövu Rós (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur nælt sér í hina efnilegu Svövu Rós Guðmundsdóttur frá Val.

Svava verður tvítug á árinu og hefur þrátt fyrir það leikið 59 leiki í efstu deild fyrir Val. Svava Rós skrifaði undir þriggja ára samning við Breiðablik.

Svava á 25 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands þar sem hún hefur skorað 9 mörk. Hún var til að mynda í byrjunarliði U-23 ára landsliðs Íslands sem spilaði gegn Póllandi í Kórnum í síðustu viku.

Þetta er mikill fengur fyrir kvennalið Breiðabliks sem hafa verið að styrkja sig að undanförnu. Landsliðskonan, Hallbera Guðný Gísladóttir gekk til liðs við Breiðabliks frá Val fyrr í vetur og nýverið gekk Málfríður Erna Sigurðardóttir einnig í raðir Blika frá Val.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner