Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 20. janúar 2015 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jedvaj er á leið til Bayer Leverkusen
Mynd: Getty Images
Tin Jedvaj er á leið til Bayer Leverkusen samkvæmt ítölskum og þýskum miðlum.

Jedvaj, sem er leikmaður AS Roma, var lánaður til Bayer fyrri part tímabilsins þar sem hann kom sér beint inn í byrjunarliðið.

Roma vildi 10 milljónir evra fyrir leikmanninn en eftir langar samningsviðræður fær félagið aðeins 7 milljónir.

Jedvaj er aðeins 19 ára gamall og á tvo A-landsleiki að baki fyrir króatíska landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner