Þegar Ally McCoist yfirgaf Rangers fyrir mánuði tók aðstoðarknattspyrnustjórinn Kenny McDowall við taumunum.
McDowall er búinn að segja af sér eftir að hafa verið við stjórn í tæpan mánuð, en hann tekur aftur við fyrra starfi sínu sem aðstoðarknattspyrnustjóri.
McDowall er búinn að segja af sér eftir að hafa verið við stjórn í tæpan mánuð, en hann tekur aftur við fyrra starfi sínu sem aðstoðarknattspyrnustjóri.
Fyrsti leikur McDowall var 4-0 tap gegn Hibernian en Rangers vann næstu tvo leiki gegn Dumbarton og Alloa.
Rangers er í öðru sæti næstefstu deildar í Skotlandi þar sem Hearts, næstu andstæðingar Rangers, eru með 13 stiga forystu.
,,Félagið virðir ákvörðun Kenny og hann nýtur áfram stuðnings frá öllum innan félagsins," stendur í yfirlýsingu frá félaginu.
Athugasemdir