þri 20. janúar 2015 08:30
Magnús Már Einarsson
Ray Anthony að semja við meistarana í Filippseyjum
RAy Anthony Jónsson.
RAy Anthony Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Ray Anthony Jónsson hefur undanfarna daga æft með Global FC í Filippseyjum og allar líkur eru á að hann geri sex mánaða samning við félagið á næstu dögum.

Global hefur orðið meistari í Filippseyjum undanfarin tvö ár en liðið mun þar af leiðandi taka þátt í AFC Cup eða Asíukeppni félagsliða í sumar.

,,Þetta kom til bara fyrir stuttu," sagði Ray í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

,,Eigandi klúbbsins hafði samband um hvort ég væri til að koma hingað og prófa í nokkra mánuði fyrst ég væri orðinn samningslaus. Ég var reyndar búinn að lofa honum að prófa spila hérna úti einhvertímann fyrir nokkrum árum síðan."

Árið 2010 byrjaði Ray að spila með landsliði Filippseyja en móðir hans er þaðan. Ray á 31 landsleik að baki en hann hefur ekkert getað spilað með landsliðinu í eitt ár vegna meiðsla. Ray útilokar ekki endurkomu í landsliðið.

,,Kannski er ennþá smá von um að spila með landsliðinu en fyrst þarf maður að komast í leikform, standa sig og vera heill," sagði Ray.

Hinn 35 ára gamli Ray hefur leikið með Keflavík undanfarin tvö ár en hann var áður á mála hjá Grindavík í áraraðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner